BookClub ready
Víga-Glúms saga (Íslendingasögur) lydbog
40,27 DKK
(inkl. moms 50,34 DKK)
Víga-Glúms saga er með elstu Íslendingasögum en hún er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar. Verkið er ævisaga og á sér stað á 10. öld. Söguhetja þess er Glúmur Eyjólfsson en hann var mikill vígamaður og hlaut þannig nafnið Víga-Glúmur. Hann hefur jafnvel verið talinn svipa til sjálfs Egils Skalla-Grímssonar, grimmustu hetju Íslendingasagnanna. Glúmur bjó á Þverá í Eyjafirði, hann var skáldmæltu...
Lydbog
40,27 DKK
Kan aflyttes i vores apps til iPhone/iPad og Android.
Kan afspilles i appen
Forlag
SAGA Egmont
Udgivet
2 april 2020
Længde
2:43
Genrer
Icelandic and Old Norse sagas
Serie
Íslendingasögur
Sprog
Icelandic
Format
mp3
Beskyttelse
Vandmærket
ISBN
9788726516265
Víga-Glúms saga er með elstu Íslendingasögum en hún er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar. Verkið er ævisaga og á sér stað á 10. öld. Söguhetja þess er Glúmur Eyjólfsson en hann var mikill vígamaður og hlaut þannig nafnið Víga-Glúmur. Hann hefur jafnvel verið talinn svipa til sjálfs Egils Skalla-Grímssonar, grimmustu hetju Íslendingasagnanna.
Glúmur bjó á Þverá í Eyjafirði, hann var skáldmæltur en þótti einnig klókur bragðarefur. Upphaflega hélt hann til Noregs að sanna sig hjá frændum sínum en síðar hélt hann heim þar sem hann átti í deilum við nágranna sína eins og flestar hetjur Íslendingasagnanna.
Sagan er sögð á skoplegan hátt og er hún háði blandin og skemmtileg lestrar.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.