Helreiðin (lydbog) af Selma Lagerlöf
BookClub ready

Helreiðin lydbog

38,16 DKK (inkl. moms 47,70 DKK)
Jódís er fátæk systir í Hjálpræðishernum, sem er komin nálægt dauðans dyr eftir baráttu við lungnabólgu. Í langan tíma hefur líf hennar gengið sinn vanagang en þegar hún byrjar að missa styrk er hún send á heilsuhæli. Þegar hún áttar sig á því að hún eigi ekki langt eftir, biður hún um að fá að hitta Davíð Hólm, alkóhólista sem vinnur í fátækrahverfinu. Hún hefur í gegnum sitt líf verið staðráð...
Lydbog 38,16 DKK
E-bog 37,09 DKK
Forfattere Selma Lagerlöf (forfatter), Kjartan Helgason (oversætter), Álfrún Helga Örnólfsdóttir (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 5 november 2021
Længde 4:04
Genrer Classic fiction: general and literary
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788726915914
Jódís er fátæk systir í Hjálpræðishernum, sem er komin nálægt dauðans dyr eftir baráttu við lungnabólgu. Í langan tíma hefur líf hennar gengið sinn vanagang en þegar hún byrjar að missa styrk er hún send á heilsuhæli. Þegar hún áttar sig á því að hún eigi ekki langt eftir, biður hún um að fá að hitta Davíð Hólm, alkóhólista sem vinnur í fátækrahverfinu. Hún hefur í gegnum sitt líf verið staðráðin í því að koma honum á beinu brautina, en með vilja sínum til þess að hjálpa hefur hún aðeins gert aðstæðurnar mun verri fyrir alla í kring. Hennar hinnsta ósk er að fá eitt tækifæri í viðbót til þess að breyta rétt.

Helreiðin er sannkölluð jólasaga sem gerist í kringum áramótin í byrjun 20. aldarinnar í litlum bæ í Svíþjóð. Hún var skrifuð til þess að vekja almenning til umhugsunar um smitleiðir berkla ásamt því að koma siðferðislegum skilaboðum á framfæri. Gerðar hafa verið kvikmyndir byggðar á bókinni, eins og The Phantom Carriage, í Svíþjóð og Frakklandi við góðar undirtektir. Selma Lagerlöf (1858-1940) var sænskur rithöfundur og kennari. Hún skrifaði sína fyrstu skáldsögu „Göst Berlings saga" árið 1891 og fékk fyrir hana Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrst Svía árið 1909. Lagerlöf er einn ástsælasti rithöfundur allra tíma og var einnig fyrsta konan til þess að vera tekin inn í Sænsku Akademínu árið 1914.