Víkingasveitin (lydbog) af Ken Follett
BookClub ready
Ken Follett (forfatter), Tor Jonsson (indlæser)

Víkingasveitin lydbog

49,97 DKK (inkl. moms 62,46 DKK)
Æsispennandi saga sem er byggð á sönnum atburðum. Árið er 1978 og mikil ólga ríkir í Íran. Eftir röð afdrifaríkra atburða í höfuðborg landsins er ljóst að óvild í garð Bandaríkjanna fer vaxandi. Í umróti byltingar eru tveir bandarískir viðskiptamenn ranglega fangelsaðir. Þegar Ross Perot, stjórnarformaður EDS, fær fréttirnar, leggur hann drög að djarfri áætlun til leysa þá úr haldi. Í framhaldi...
Lydbog 49,97 DKK
E-bog 36,20 DKK
Forfattere Ken Follett (forfatter), Helgi Már Barðason (oversætter), Tor Jonsson (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 15 maj 2025
Længde 13:15
Genrer Historical adventure fiction
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788727151342

Æsispennandi saga sem er byggð á sönnum atburðum.

Árið er 1978 og mikil ólga ríkir í Íran. Eftir röð afdrifaríkra atburða í höfuðborg landsins er ljóst að óvild í garð Bandaríkjanna fer vaxandi.

Í umróti byltingar eru tveir bandarískir viðskiptamenn ranglega fangelsaðir. Þegar Ross Perot, stjórnarformaður EDS, fær fréttirnar, leggur hann drög að djarfri áætlun til leysa þá úr haldi.

Í framhaldinu leggur hópur manna upp í áhættusaman leiðangur sem krefst bæði hugrekkis og djörfungar eigi þeir að komast lífs af.

Árið 1986 var gerð sjónvarpsþáttaröð eftir bókinni sem ber sama heiti. Þar fara Burt Lancaster, Richard Crenna og Paul Le Mat með aðalhlutverkin.

Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.