Hyski (lydbog) af Grimmsbræður
BookClub ready
25,00 DKK (inkl. moms 31,25 DKK)
Eftir að haninn og hænan höfðu farið á stúfana í hnetuleit og étið hvor sína fyllina af hnetum fóru þau að rífast um það hvernig þau ættu að komast heim. Þau voru pakksödd og nenntu ekki fyrir nokkra muni að ganga heim. Hananum tekst að snara önd fyrir öfurlítinn vagn sem hann hafði útbúið og þannig bruna þau af stað. Seint um kvöldið koma þau að gistihúsi og gestgjafinn samþykkir eftir töluver...
Lydbog 25,00 DKK
E-bog 25,00 DKK
Forfattere Grimmsbræður (forfatter), Theódór Árnason (oversætter), Árni Beinteinn Árnason (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 29 januar 2022
Længde 0:05
Genrer Fairy and Folk tales / Fairy tale retellings
Nummer i serie 39
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788728038543
Eftir að haninn og hænan höfðu farið á stúfana í hnetuleit og étið hvor sína fyllina af hnetum fóru þau að rífast um það hvernig þau ættu að komast heim. Þau voru pakksödd og nenntu ekki fyrir nokkra muni að ganga heim. Hananum tekst að snara önd fyrir öfurlítinn vagn sem hann hafði útbúið og þannig bruna þau af stað. Seint um kvöldið koma þau að gistihúsi og gestgjafinn samþykkir eftir töluverðar mótbárur að hleypa þeim inn. Það renna þó á hann tvær grímur þegar hann áttar sig á því hvernig í pottinn er búið. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra. Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.