BookClub ready
Úlfurinn og tófan (Grimmsævintýri #48) lydbog
25,00 DKK
(inkl. moms 31,25 DKK)
Ævintýrið Tófan og úlfurinn fjallar um sérkennilega vináttu úlfsins og tófunnar. Úlfurinn vildi ráða yfir tófunni sem þurfti að beita brögðum til að fá sínu framgengt. Einu sinni sem oftar vildi úlfurinn að tófan fyndi eitthvað handa honum að éta enda gráðugur mjög. Tófan reyndi hvað hún gat að benda úlfinum á að fara varlega í átinu en úlfurinn lét sér ekki segjast. Þegar úlfurinn kemst á snoð...
Lydbog
25,00 DKK
E-bog
25,00 DKK
Kan aflyttes i vores apps til iPhone/iPad og Android.
Kan afspilles i appen
Forlag
SAGA Egmont
Udgivet
29 januar 2022
Længde
0:05
Genrer
Fairy and Folk tales / Fairy tale retellings
Serie
Grimmsævintýri
Nummer i serie
48
Sprog
Icelandic
Format
mp3
Beskyttelse
Vandmærket
ISBN
9788728038635
Ævintýrið Tófan og úlfurinn fjallar um sérkennilega vináttu úlfsins og tófunnar. Úlfurinn vildi ráða yfir tófunni sem þurfti að beita brögðum til að fá sínu framgengt. Einu sinni sem oftar vildi úlfurinn að tófan fyndi eitthvað handa honum að éta enda gráðugur mjög. Tófan reyndi hvað hún gat að benda úlfinum á að fara varlega í átinu en úlfurinn lét sér ekki segjast. Þegar úlfurinn kemst á snoðir um saltað kjöt í tunnu hjá bóndanum biður hann tófuna um að fylgja sér þangað. Tófan fylgir úlfinum að kræsingunum en hefur ekki í hyggju að éta sig pakksadda með úlfinum.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.