Ég veit þú lifir (Rauðu ástarsögurnar 8) (lydbog) af Erling Poulsen
Erling Poulsen (forfatter), Hrafnhildur Halldórsdóttir (indlæser)

Ég veit þú lifir (Rauðu ástarsögurnar 8) (Rauðu ástarsögurnar #8) lydbog

36,20 DKK (inkl. moms 45,25 DKK)
„Þegar hamingjusamasta stund lífs þíns breytist í andhverfu sína“Líf Beötu Birk breytist samstundis í martröð þegar eiginmaður hennar, Arvid, deyr aðeins klukkustund fyrir brúðkaupsvígsluna þeirra. Dauði Arvids er Beötu að öllu leyti óskiljanlegur og læðist fljótlega að henni sú ónotakennd að ekki sé allt með felldu. Staðráðin í að fylgja innsæinu, leitar Beata skýringa og í kjölfarið fær hún v...
Lydbog 36,20 DKK
E-bog 36,20 DKK
Forfattere Erling Poulsen (forfatter), Skúli Jensson (oversætter), Hrafnhildur Halldórsdóttir (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 23 november 2023
Længde 6:54
Genrer Romantic suspense
Nummer i serie 8
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788728354179

„Þegar hamingjusamasta stund lífs þíns breytist í andhverfu sína“

Líf Beötu Birk breytist samstundis í martröð þegar eiginmaður hennar, Arvid, deyr aðeins klukkustund fyrir brúðkaupsvígsluna þeirra. Dauði Arvids er Beötu að öllu leyti óskiljanlegur og læðist fljótlega að henni sú ónotakennd að ekki sé allt með felldu. Staðráðin í að fylgja innsæinu, leitar Beata skýringa og í kjölfarið fær hún vísbendingar um að tilvonandi eiginmaður hennar gæti enn verið á lífi.

Rauðu ástarsögurnar

Rauðu ástarsögurnar samanstanda af rómantískum skáldsögum úr smiðju Erling Poulsen. Bækurnar innihalda jafnan ævintýralegar sögur þar sem staðarhættir margvíslegra borga um allan heim spila stórt hlutverk. Rómantíkin fléttast gjarnan við ferðalög en einnig dramatískar glæpasenur og leyndarmál sem býr til áhugverðan kokteil fyrir lesendur sem vilja gleyma sér í amstri hins daglega lífs.

Erling Poulsen (1919-1995) var danskur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði fjölda skáldsagna í flokki afþreyingarbókmennta, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni notaðist Poulsen einnig við dulnefnin Bodil Forsberg og Else-Marie Nohr. Þekktasta skáldaga hans er „Drømmen om det hvide slot“, sem var gerð að kvikmynd árið 1962 undir leikstjórn Anker Sørensen.