Hálfbróðirinn (lydbog) af Lars Saabye Christensen

Hálfbróðirinn lydbog

47,58 DKK (inkl. moms 59,48 DKK)
Örlagasaga fjögurra kynslóða sem eru markaðar af átakanlegum atburði. Veru Jebsen er nauðgað en hún segir engum frá, allt þar til Fred sonur hennar fæðist. Atburðurinn hefur afdrifarík áhrif á ævi Freds og fjölskyldu hans, en sagan er sögð frá sjónarhóli Barnum bróður hans. Inn í frásagnir Barnums af sérstöku sambandi þeirra bræðra tvinnast þroskasaga hans sjálfs og bréf langafa hans til langöm...
Lydbog 47,58 DKK
E-bog 47,58 DKK
Forfattere Lars Saabye Christensen (forfatter), Sigrún Kristín Magnúsdóttir (oversætter), Kristján Franklín Magnús (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 11 januar 2024
Længde 33:58
Genrer Historical fiction
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788727086187

Örlagasaga fjögurra kynslóða sem eru markaðar af átakanlegum atburði.

Veru Jebsen er nauðgað en hún segir engum frá, allt þar til Fred sonur hennar fæðist. Atburðurinn hefur afdrifarík áhrif á ævi Freds og fjölskyldu hans, en sagan er sögð frá sjónarhóli Barnum bróður hans. Inn í frásagnir Barnums af sérstöku sambandi þeirra bræðra tvinnast þroskasaga hans sjálfs og bréf langafa hans til langömmu hans frá Norður-Íshafinu og Grænlandi. Sagan segir jafnt frá bræðrunum og ævi formæðra þeirra, sem leiðir allt að sömu endalokunum. Inn í átakanlegan söguþráðinn tvinnast svo húmor höfundar, sem gerir lesandanum ómögulegt að leggja bókina frá sér.

Bókin hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, og verið gerð að vinsælli sjónvarpsþáttaröð, sem var tilnefnd til Prix Europa, evrópsku sjónvarpsverðlaunanna.

Lars Saabye Christensen (1953) er norsk/danskur rithöfundur og einn vinsælasti norski rithöfundurinn af sinni kynslóð. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hefur verið aðlaður af bæði norsku og frönsku ríkisstjórnunum. Árið 2018 fékk hann Amanda kvikmyndaverðlaunin fyrir framlag sitt til norskrar menningar, en hann er einnig afkastamikill handritshöfundur.

Bókin fær 4,12 stjörnur af fimm mögulegum hjá notendum Goodreads.