Litli Kláus og stóri Kláus (lydbog) af H.c. Andersen
BookClub ready
H.c. Andersen (forfatter), Jóhann Sigurðarson (indlæser)

Litli Kláus og stóri Kláus (Hans Christian Andersen's Stories) lydbog

25,00 DKK (inkl. moms 31,25 DKK)
Litli Kláus á einn hest, en stóri Kláus fjóra. Alla daga vikunnar nema sunnudag verður litli Kláus að lána sinn eina hest fyrir plóginn með hestum stóra Kláusar. Á sunnudögum hefur hann þó hópinn fyrir sig og færist kapp í kinn við jarðvinnuna. Hann freistast til að eigna sér hrossin í huganum og í orði, en það getur stóri Kláus ekki þolað og drepur hestinn hans litla Kláusar. Sársorgmæddur hel...
Lydbog 25,00 DKK
Forfattere H.c. Andersen (forfatter), Steingrímur Thorsteinsson (oversætter), Jóhann Sigurðarson (indlæser)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 4 maj 2020
Længde 0:30
Genrer Children’s / Teenage fiction: Classic fiction
Sprog Icelandic
Format mp3
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788726238242
Litli Kláus á einn hest, en stóri Kláus fjóra. Alla daga vikunnar nema sunnudag verður litli Kláus að lána sinn eina hest fyrir plóginn með hestum stóra Kláusar. Á sunnudögum hefur hann þó hópinn fyrir sig og færist kapp í kinn við jarðvinnuna. Hann freistast til að eigna sér hrossin í huganum og í orði, en það getur stóri Kláus ekki þolað og drepur hestinn hans litla Kláusar.

Sársorgmæddur heldur litli Kláus af stað í ferð með hrosshúðina með sér í pokaskjatta. Fyrstu nóttina biðst hann gistingar hjá bændahjónum, sem hann á síðar eftir að leika laglega á. En sú brella er bara sú fyrsta í röð bellibragða sem hann notar til að ná fram hefnd sinni á stóra Kláusi.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Sagan af Kláusunum tveimur er á yfirborðinu kímileg saga þar sem valdamikið illmenni hlýtur makleg málagjöld. Ofbeldið í sögunni er þó umtalsvert og þeir félagar svífast einskis til að láta bellibrögð sín og fjárgræðgi ná fram að ganga.