Bandamanna saga (e-bog) af Óþekktur
Óþekktur (forfatter)

Bandamanna saga (Íslendingasögur) e-bog

30,98 DKK (inkl. moms 38,72 DKK)
Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum...
E-bog 30,98 DKK
Forfattere Óþekktur (forfatter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 31 juli 2020
Længde 30 sider
Genrer Icelandic and Old Norse sagas
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788726225525
Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.

Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabók töluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.