Flóamanna saga (e-bog) af Óþekktur
Óþekktur (forfatter)

Flóamanna saga (Íslendingasögur) e-bog

30,98 DKK (inkl. moms 38,72 DKK)
Flóamanna saga er talin rituð um 1300 en hún hefur varðveist í tveimur útgáfum sem eru heldur frábrugðnar hvor frá annarri. Sögusviðið hennar er Gaulverjabær á Suðurlandi en einnig teygir hún sig til Noregs, Bretlands og Grænlands. Verkið fjallar um Þorgils Örrabeinsstjúp, nokkuð dæmigerða íslenska hetju sem tekur upp kristni og uppsker í kjölfarið reiði þrumuguðsins Þórs. Auk hans koma við sög...
E-bog 30,98 DKK
Forfattere Óþekktur (forfatter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 31 juli 2020
Længde 30 sider
Genrer Icelandic and Old Norse sagas
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788726225594
Flóamanna saga er talin rituð um 1300 en hún hefur varðveist í tveimur útgáfum sem eru heldur frábrugðnar hvor frá annarri. Sögusviðið hennar er Gaulverjabær á Suðurlandi en einnig teygir hún sig til Noregs, Bretlands og Grænlands.

Verkið fjallar um Þorgils Örrabeinsstjúp, nokkuð dæmigerða íslenska hetju sem tekur upp kristni og uppsker í kjölfarið reiði þrumuguðsins Þórs. Auk hans koma við sögu þekktar persónur eins og Ingólfur Arnarson, fóstbróður hans Leifur, Eiríkur rauði og Ásgrímur Elliða-Grímsson. Verkið er vel uppbyggt og þykir frásögnin frá dvölinni á Grænlandi áhrifamikil og nokkuð raunsönn.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.