Króka-Refs saga (e-bog) af Óþekktur
BookClub ready
Óþekktur (forfatter)

Króka-Refs saga (Íslendingasögur) e-bog

30,98 DKK (inkl. moms 38,72 DKK)
Króka-Refs saga segir frá Refi Steinssyni sem hrekst frá Íslandi vegna deilna. Ferðast hann þá víða og fer meðal annars til Grænlands, Danmerkur og Noregs. Þrátt fyrir að teljast ekki til vinsælustu Íslendingasagna er sagan um margt skemmtileg. Hún minnir á riddarasögur eða fornaldarsögur Norðurlanda.Verkið er ólíkt helstu Íslendingasögum að því leyti að söguhetjan, Refur, er ekki sérlega líku...
E-bog 30,98 DKK
Lydbog 36,81 DKK
Forfattere Óþekktur (forfatter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 25 september 2020
Længde 30 sider
Genrer Icelandic and Old Norse sagas
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788726225648
Króka-Refs saga segir frá Refi Steinssyni sem hrekst frá Íslandi vegna deilna. Ferðast hann þá víða og fer meðal annars til Grænlands, Danmerkur og Noregs. Þrátt fyrir að teljast ekki til vinsælustu Íslendingasagna er sagan um margt skemmtileg. Hún minnir á riddarasögur eða fornaldarsögur Norðurlanda.

Verkið er ólíkt helstu Íslendingasögum að því leyti að söguhetjan, Refur, er ekki sérlega líkur algengustu hetjum og stórmennum. Hann er nokkurs konar blanda af andhetju og ofurhetju. Til að mynda hikar hann ekki við að beita brögðum til að ná sínu fram og kemur sér hjá beinum átökum án nokkurrar skammar.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.