Gandreiðin (e-bog) af Benedikt Gröndal
Benedikt Gröndal (forfatter)

Gandreiðin (Sígildar bókmenntir) e-bog

32,15 DKK (inkl. moms 40,19 DKK)
Undirtitill Gandreiðarinnar er Sorgarleikr í mörgum þáttum. Í raun er það gamanleikrit, þar sem höfundur hendir gaman að fornbókmenntum og hetjudýrkun þeirra á óvæginn og skoplegan hátt. Meðal persóna eru goðin Óðinn, Þór og Freyja, en einnig koma við sögu Egill Skallagrímsson og meira að segja Lúsífer sjálfur, gjarnan kallaður "djöfsi". Leikritið er hörð ádeila á samtíma höfundar, ekki síst Da...
E-bog 32,15 DKK
Forfattere Benedikt Gröndal (forfatter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 22 juli 2022
Længde 40 sider
Genrer Classic and pre-20th century plays
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788728240496
Undirtitill Gandreiðarinnar er Sorgarleikr í mörgum þáttum. Í raun er það gamanleikrit, þar sem höfundur hendir gaman að fornbókmenntum og hetjudýrkun þeirra á óvæginn og skoplegan hátt. Meðal persóna eru goðin Óðinn, Þór og Freyja, en einnig koma við sögu Egill Skallagrímsson og meira að segja Lúsífer sjálfur, gjarnan kallaður "djöfsi". Leikritið er hörð ádeila á samtíma höfundar, ekki síst Dani og stjórn þeirra á landinu. Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal (1826-1907) fæddist að Bessastöðum á Álftanesi. Þó hann hafi verið einn tíu systkina fékk hann góða menntun og fór til Kaupmannahafnar í nám þegar hann hafði aldur til. Hann lauk ekki námi og sneri aftur til Reykjavíkur, en endaði með að fara aftur í nám til Kaupmannahafnar sjö árum síðar. Þar kynntist hann skrautlegu fólki og endaði með að ferðast til Belgíu og taka kaþólska trú. Eftir það lauk hann loks prófi í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla, en hann var fyrstur Íslendinga til þess. Benedikt hneigðist mjög að list og náttúrufræðum og var meðal annars einn af stofnendum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Eftir hann liggja ómetanlegar teikningar af lífríki Íslands. Hann var einnig afbragðsgott skáld og orti bæði ljóð, skrifaði leikrit og sögur. Verk hans bera sterkan brag af samtímanum en eru undir miklum áhrifum af íslenskum fornbókmenntum, oft á býsna kómískan hátt.