Jón Sigurðsson: Andþóf (e-bog) af Páll Eggert Ólason
BookClub ready
Páll Eggert Ólason (forfatter)

Jón Sigurðsson: Andþóf (Jón Sigurðsson #3) e-bog

57,51 DKK (inkl. moms 71,89 DKK)
Þriðji hluti ævisögu Jóns Sigurðssonar greinir frá Alþingisfundunum árin 1853 og 1857, þeim ýmsu þingmálum sem þar voru tekin fyrir ásamt baráttu Íslendinga fyrir verslunarfrelsi. Þrátt fyrir vonbrigði að þjóðfundi loknum, efldu niðurstöður hans samstöðu og viðhorf þjóðarinnar til sjálfstæðisbaráttu. Þá litu landsmenn helst til Jóns Sigurðssonar hvað þjóðmál snertir enda atorkusamur í að koma s...
E-bog 57,51 DKK
Forfattere Páll Eggert Ólason (forfatter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 5 april 2023
Længde 427 sider
Genrer Autobiography: general
Nummer i serie 3
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788728281840
Þriðji hluti ævisögu Jóns Sigurðssonar greinir frá Alþingisfundunum árin 1853 og 1857, þeim ýmsu þingmálum sem þar voru tekin fyrir ásamt baráttu Íslendinga fyrir verslunarfrelsi. Þrátt fyrir vonbrigði að þjóðfundi loknum, efldu niðurstöður hans samstöðu og viðhorf þjóðarinnar til sjálfstæðisbaráttu. Þá litu landsmenn helst til Jóns Sigurðssonar hvað þjóðmál snertir enda atorkusamur í að koma skoðunum sínum á framfæri, bæði í ræðu og riti. Var það helst tímaritið Ný félagsrit sem birti skoðanir baráttumanna um höfuðmál þjóðarinnar á fræðandi, leiðbeinandi og hvetjandi máta. Á þessum tíma tók Jón einnig við stöðu forseta Hins Íslenzka bókmenntafélags ásamt því að starfa fyrir Árnasafn þar sem hann lagði ríka áherslu á söfnun íslenskra handrita.

Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason. Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.