Á valdi auðs og ástar (e-bog) af Georgette Heyer
BookClub ready
Georgette Heyer (forfatter)

Á valdi auðs og ástar e-bog

36,20 DKK (inkl. moms 45,25 DKK)
Lafði Mablethorpe stendur ekki á sama þegar einkasonur hennar, Adrian, fellur fyrir hinni umdeildu Deborah Grantham. Til að koma vitinu fyrir son sinn, leitar hún á náðir frænda síns, Max Ravenscar, sem svarar kallinu og hyggst uppfylla óskir frænku sinnar. Deborah hefur starfað við spilavítið á St. Jamestorgi frá unga aldri og er eftirsótt meðal piparsveina sem þangað leggja leið sína. Þrátt f...
E-bog 36,20 DKK
Lydbog 49,18 DKK
Forfattere Georgette Heyer (forfatter), Ásgeir Ingólfsson (oversætter)
Forlag SAGA Egmont
Udgivet 19 august 2024
Længde 237 sider
Genrer Classic fiction: general and literary
Sprog Icelandic
Format epub
Beskyttelse Vandmærket
ISBN 9788727158785

Lafði Mablethorpe stendur ekki á sama þegar einkasonur hennar, Adrian, fellur fyrir hinni umdeildu Deborah Grantham. Til að koma vitinu fyrir son sinn, leitar hún á náðir frænda síns, Max Ravenscar, sem svarar kallinu og hyggst uppfylla óskir frænku sinnar. Deborah hefur starfað við spilavítið á St. Jamestorgi frá unga aldri og er eftirsótt meðal piparsveina sem þangað leggja leið sína. Þrátt fyrir vafasamt orðspor hennar kemur fegurð Deborah, karakter og útsjónarsemi Max á óvart. Tekur þá við flókin framvinda mála þar sem eldheitar tilfinningar, óvæntar ástir og undirferli koma við sögu.

Georgette Heyer (1902-1974) var enskur rit- og smásagnahöfundur. Frá unga aldri lagði hún stund á skriftir og var aðeins sautján ára þegar frumraun hennar á ritvellinum „The Black Moth“ var gefin út. Það reyndist einungis byrjunin á tilkomumiklum ferli en Georgette skrifaði yfir 57 bækur um dagana og nutu margar þeirra vinsælda um allan heim. Hún var brautryðjandi í flokki sakamálasagna og sögulegrar rómantíkur og lagði sérstaka áherslu á sögur sem atvikuðust á ríkisstjóratímanum í Bretlandi. Hér á landi höfðu margir unun af bókum hennar en fyrsta þýðingin var gefin út af Vöku árið 1984 og síðan fleiri í framhaldinu.