BookClub ready
Bindindissögur (Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur #8) e-bog
25,00 DKK
(inkl. moms 31,25 DKK)
Bindindissögur, eins og titillinn gefur til kynna, fjallar um áfengi og edrúmennsku á 20. öldinni. Hér eru fimm sögur sem eiga allar sameiginlegt þema. Bindindismennska þótti mikil dygð á 20. öldinni og strengdi fólk gjarnar bindindisheit af trúarlegum ástæðum. Sumar í sveitinni fjallar um Pál, hann er efnilegur og góður unglingur sem berst við að taka góðar ákvarðanir þegar hann gengur í gegnu...
E-bog
25,00 DKK
Kan læses i vores apps til iPhone/iPad og Android.
Kan læses i appen
Forlag
SAGA Egmont
Udgivet
17 april 2023
Længde
36 sider
Genrer
Classic fiction: general and literary
Nummer i serie
8
Sprog
Icelandic
Format
epub
Beskyttelse
Vandmærket
ISBN
9788728569252
Bindindissögur, eins og titillinn gefur til kynna, fjallar um áfengi og edrúmennsku á 20. öldinni. Hér eru fimm sögur sem eiga allar sameiginlegt þema. Bindindismennska þótti mikil dygð á 20. öldinni og strengdi fólk gjarnar bindindisheit af trúarlegum ástæðum.
Sumar í sveitinni fjallar um Pál, hann er efnilegur og góður unglingur sem berst við að taka góðar ákvarðanir þegar hann gengur í gegnum viðkvæman tíma. Freistingar - Sigur er frásaga úr lífi drykkjumanns sem snertir á fjölskyldulífi og ást. Bón Fannýjar fjallar um verðandi brúður sem biður unnusta sinn að leggja niður bindindi sitt í eitt kvöld til þess að skála í brúðkaupinu. Gamla sagan og Úrfestin eru jólasögur sem fjalla um áfengisneyslu í kringum jólahátíðirnar.
Hér veitir Guðrún Lárusdóttir (1880-1938) innsýn í samfélagsmál á 20. öldinni, hún var trúrækin prestsdóttir sem kynnti sér fjölmörg samfélagsmál á ferli sínum sem stjórnmálakona og rithöfundur.
Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.