BookClub ready
Alvitur læknir (Grimmsævintýri #38) e-bog
25,00 DKK
(inkl. moms 31,25 DKK)
Krabbi var fátækur bóndi sem aflaði aukatekna við að selja við. Einu sinni sem oftar lá leið hans til borgarinnar til að afhenda viðarhlass til læknisins. Þegar þangað kemur og hann sér hvar læknirinn gæðir sér á kræsingum miklum óskar hann þess innilega að vera líka læknir. Aðspurður segist læknirinn geta gert bóndann að lækni á svipstundu. Hann þurfi bara að festa skilti á hurðina hjá sér þar...
E-bog
25,00 DKK
Lydbog
25,00 DKK
Kan læses i vores apps til iPhone/iPad og Android.
Kan læses i appen
Forlag
SAGA Egmont
Udgivet
1 januar 2022
Længde
4 sider
Genrer
Fairy and Folk tales / Fairy tale retellings
Serie
Grimmsævintýri
Nummer i serie
38
Sprog
Icelandic
Format
epub
Beskyttelse
Vandmærket
ISBN
9788728036624
Krabbi var fátækur bóndi sem aflaði aukatekna við að selja við. Einu sinni sem oftar lá leið hans til borgarinnar til að afhenda viðarhlass til læknisins. Þegar þangað kemur og hann sér hvar læknirinn gæðir sér á kræsingum miklum óskar hann þess innilega að vera líka læknir. Aðspurður segist læknirinn geta gert bóndann að lækni á svipstundu. Hann þurfi bara að festa skilti á hurðina hjá sér þar sem stendur að þar búi alvitur læknir. Þegar til hans leitar herramaður og biður hann um aðstoð við að leysa sakamál, heldur Alvitur ásamt konu sinni til hallar herramannsins í von um að leysa málið og uppskera ríkulega.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.